Á Barnaspítala Hringsins er viðurkennt sérnám í barnalækningum. Miðað er við að barnasérnámslæknar (BASL) geti tekið tvö ár af skipulögðu námi á Barnaspítalanum skv marklýsingu sem samþykkt hefur verið af Leyfis- og hæfnisnefnd Heilbrigðisráðuneytisins.
Kennslustjóri framhaldsnáms á Barnaspítala Hringsins er Óli Hilmar Ólason, nýburalæknir. Áður gegndi Þórður Þórkelsson, yfirlæknir Vökudeildar því starfi og á stóran þátt í samningu Marklýsingarinnar og upphafi sérnámsins.
Kennsluráð er skipað eftirfarandi aðilum:
Kennslustjóri: Óli Hilmar Ólason nýburalæknir
Forstöðumaður færðasviðs í barnalækningum: Hans Tómas Björnsson, prófessor í barnalækningum
Klínískir yfirlæknar Barnaspítala Hringsins:
Ragnar Bjarnason, yfirlæknir barnalækninga, Þórður Þórarinn Þórðarson, yfirlæknir Vökudeildar og Kristján Óskarsson, yfirlæknir barnaskurðdeildar.
Fulltrúi BASL:
Einnig má finna upplýsingar hér um sérnám í barnlækningum, m.a. upplýsingar fyrir umsækjendur.

Barnalæknar í sérnámi á Barnaspítala Hringsins:
- Andrea Ýr Úlfhéðinsdóttir
- Ásta Evlalía Hrafnkelsdóttir
- Birta Bæringsdóttir
- Dagný Birta Arnardóttir
- Elin Óla Klemenzdóttir
- Helga Þórunn Óttarsdóttir
- Helga Þráinsdóttir
- Hrafn Hlíðdal Þorvaldsson
- Íris Kristinsdóttir
- Jens Georg Waagsbo Stensrud
- Kristín Júlía Erlingsdóttir
- Kristín Óskarsdóttir
- Stefán Orri Ragnarsson
- Viktoría Hróbjartsdóttir
Kennsla sérnámslækna er bæði klínísk/verkleg og bókleg.
Formlegir fyrirlestrar og fundir eru:
Þriðjudagar: klínískt tilfelli
Miðvikudagar: hádegisfundur
Fimmtudagar. Fræðslufundur Barnaspítala Hringsins
Föstudagur: Grand – round
Föstudagur: Formleg BASL-kennsla
Auk þess taka BASLarar þátt í verklegri kennslu læknanema. Einnig eru fræðsluerindi læknanema (greinakynningar) á morgunfundum Barnaspítala Hringsins.
Sérfæðingar sjá um kennslu á föstudögum,
skrá yfir fyrirlestra og fyrirlesara er hér
BASL-dagar
BASL-dagur að vori er helgaður faglegum og fræðilegum efnum, rannsóknum BASLara eða annarra o.s.frv.
BASL-dagur að hausti er meira helgaður klínískum verkefnum, gæðaskjölum, klínískum leiðbeiningum o.s.frv.

á góðum degi !
